Suður Kóreanska útgerðin, sem Navis vann fyrir að breytingum á M/V Maestro fyrr á árinu, hefur keypt annan togara. Um er að ræða 98 m langan rússnenskan togara, sem byggður var 1982. Togarinn, sem hét „Koralas“, hefur hlotið nafnið „Adventure“.
Frá því var sagt í gær á mbl.is að fyrstu kajakgrindurnar sem smíðaðar eru í Hnífsdal verða sendar til útlanda í lok janúar eða byrjun febrúar. Þetta er í fyrsta skipti sem kajakar eru smíðaðir á Íslandi, sérstaklega til útflutnings. Tveir menn vinna við smíðina og ef salan verður eins góð og vonir standa til fjölgar þeim í fjóra.
Í tengslum við verkefni Navis í Kína fólu kínverskir viðskiptavinir Navis að vinna skýrslu um vinnslu og veiðar ljósátu (krilli)í Suður-Íshafinu. Agnar Erlingsson skipaverkfræðingur hjá Navis vann skýrsluna.
Undanfarna mánuði hefur Karl Lúðvíksson skipaverkfræðingur hjá Navis aðstoðað Grænlensk-íslenska fyrirtækið Greenland kayaks við hönnun á Grænlenskaum kajak sem fyrirtækið hyggst smíða á verkstæði sínu á Ísafirði. Karl hefur tölvuunnið þrívíddarmódel af grind kajaksins og gert nauðsynlega styrktar- og stöðugleikaútreikninga fyrir hann.