EnglishÍslenska    hafðu samband    veftré

19. september 2011

Meðal nýjunga sem Navis kynnir á Íslensku sjávarútvegssýningunni að þessu sinni er tveggja skrúfu togari, skrokkhönnun sem nýtir orkuna betur, leiðir til að létta meðferð kara í lestum ísfiskskipa og endurbætt hönnun við línuveiðar. Allt eru þetta dæmi um lausnir sem starfsmenn Navis hafa verið að vinna að undanfarin misseri samhliða margvíslegum verkefnum fyrir erlendar útgerðir og skipasmíðastöðvar.

18. september 2011

Nú standa yfir endurbætur á Beta I í Las Palmas, Kanaríeyjum.  Verið er að endurnýja aðra aðra ljósavélina og ýmis viðhaldsvinna er unnin samtímis. ´

14. september 2011

Nú er að ljúka breytingum á suður kóreanska togaranum M/V Adventure.  Starfsmaður Navis, Hermann Haraldsson, skipatæknifræðingur er nýkominn heim eftir að hafa dvalið í Höfðaborg frá því í byrjun júli, þar sem hann hefur haft með höndum teiknivinnu vegna breytinganna og eftirlit með framkvæmdum. 






STARFSSTÖÐ
Navis
Flatahrauni 5A
220 Hafnarfjörður

Sími 544 2450
Fax 544 2451

Netfang navis@navis.is