EnglishÍslenska    hafðu samband    veftré

Ráðgjöf
Viðskiptavinum NAVIS stendur til boða fjölbreytt ráðgjöf á sviði verkfræði, skipasmíða og útgerðar. Fyrirtækið hefur meðal annars leitt og tekið þátt í rannsóknarverkefnum á vegum Siglingastofnunar Íslands, séð um leiðbeiningar og mat á verkefnum áður en í þau er ráðist, undirbúið, aðstoðað við og gert útboðsgögn sem undanfara framkvæmda, tekið þátt í og leitt samningaviðræður og metið og samið um verklok og greiðslur. Fyrirtækið sér um hallaprófanir, stöðugleikaútreikninga og margs konar önnur tæknimál og áætlanir fyrir útgerðarmenn, skipasmíðastöðvar og þjónustuaðila.  Verkefnin er fjölbreytt og af ýmsum toga.


STARFSSTÖÐ
Navis
Flatahrauni 5A
220 Hafnarfjörður

Sími 544 2450
Fax 544 2451

Netfang navis@nav.is